Ísak Andri mættur aftur til Norrköping - „Búumst við ákveðnum leikmanni"

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Guðmundur Svansson
Sænska félagið Norrköping greinir frá því að Ísak Andri Sigurgeirsson sé mættur aftur til félagsins eftir misheppnaða lánsdvöl hjá danska félaginu Viborg.
Ísak spilaði aðeins sex leiki í dönsku deildinni áður en hann meiddist og gekkst undir kviðslitsaðgerð.
Norrköping greinir frá því að bataferlið gangi vel og hann muni byrja að æfa hægt og rólega.
„Því miður gat Ísak ekki tekið þátt í seinni hluta lánsins vegna meiðsla. Við búumst við ákveðnum leikmanni til baka og hann byrjar eins og aðrir í liðinu þann 7. júlí," sagði Henrik Jurelius, yfirmaður fótboltamála hjá Norrköping.
Norrköping er í 3. sæti í næst efstu deild. Deildin hefst aftur þann 19. júlí eftir tæplega mánaðar hlé.

Heimild: Norrköping