Maður dagsins á HM - Unnu hug og hjörtu allra

Pico Lopes var magnaður á mótinu

Mynd: EPA

Úr leiknum gegn Argentínu

Mynd: EPA

Pico Lopes var magnaður á mótinu

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

TENGT EFNI
HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum
Erfitt er að velja einn leikmann sem mann dagsins að þessu sinni, enda væri hægt að nefna nokkra úr baráttuglöðu liði Grænhöfðaeyja, sem er úr leik eftir spennutrylli gegn Argentínu í 32-liða úrslitum.
Hinn 34 ára gamli Pico Lopes hefur hins vegar verið einn besti varnarmaður mótsins og fær því heiðurinn að þessu sinni.
Lopes hefur varla stigið feilspor í vörninni og frammistaða hans hefur komið verulega á óvart. Hann hefur spilað allan sinn feril á Írlandi með Bohemians og Shamrock Rovers.
Hann lék með unglingalandsliði Írlands, en árið 2018 ákvað Rui Aguas, þáverandi landsliðsþjálfari Grænhöfðaeyja, að senda honum skilaboð á LinkedIn þar hann sá að Lopes ætti ættir að rekja til landsins og spyrja hvort hann væri til í að spila fyrir landsliðið. Skilaboðin voru á portúgölsku, sem Lopes talaði ekki, og var þeim því hundsað.
Níu mánuðum síðar sendi Aguas honum önnur skilaboð, þá á ensku, og Lopes svaraði. Hann samþykkti að skipta um landslið og lék sinn fyrsta landsleik í 2-0 sigri á Tógó árið 2019.
Lopes hefur verið eins og klettur í vörn Grænhöfðaeyja. Hann var stórkostlegur í jafnteflunum gegn Sádi-Arabíu, Spáni og Úrúgvæ og stóð sig einnig frábærlega gegn Argentínu, þar sem heimsmeistararnir þurftu framlengingu til að afgreiða nýliðana.
Ryan Mendes og Vozinha fá heiðarlega tilnefningu í mann dagsins. Það gera einnig Lisandro Martinez hjá Argentínu, sem skoraði og lagði upp, Luis Diaz, sem var öflugur í sigri Kolumbiu á Gana, og Mohamed Salah, sem lét ljós sitt skína þegar Egyptaland skrifaði söguna gegn Ástralíu.