HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentína 3-2 Grænhöfðaeyjar
1-0 Lionel Messi ('29 )
1-1 Deroy Duarte ('59 )
2-1 Lisandro Martinez ('92 )
2-2 Sidny Lopes Cabral ('103)
3-2 Diney Borges ('111)
1-0 Lionel Messi ('29 )
1-1 Deroy Duarte ('59 )
2-1 Lisandro Martinez ('92 )
2-2 Sidny Lopes Cabral ('103)
3-2 Diney Borges ('111)
Það var búist við öruggum sigri Argentínu þegar liðið mætti Grænhöfðaeyjum í 32-liða úrslitum á HM í kvöld.
Lionel Messi fékk fyrsta færi leiksins eftir stundafjórðung en skotið framhjá úr þröngu færi. Messi gerði hins vegar engin mistök eftir hálftíma leik. Lisandro Martinez átti frábæra sendingu á Messi sem tók mjög vel á móti boltanum og skoraði yfir Vozinha í marki Grænhöfðaeyja.
Þetta var tuttugasta mark Messi á heimsmeistaramóti. Hann bætti met Miroslav Klose yfir flest mörk á HM fyrr á þessu móti en Klose skoraði 16 mörk á sínum tíma.
Leikmenn Grænhöfðaeyja komu sterkir út í seinni hálfleikinn. Argentína náði ekki að ógna Vozinha í upphafi.
Grænhöfðaeyjar jöfnuðu metin eftir hálftíma leik. Deroy Duarte fékk boltann inn á teignum og skoraði með skoti af stuttu færi í fjærhornið.
Vozinha sýndi stórkostleg tilþrif þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Hann var að stilla upp vegg fyrir aukaspyrnu frá Messi þegar sá síðarnefndi tók hana en Vozinha var fljótur að bregðast við og varði stórkostlega.
Argentína setti mikla pressu á vörn Grænhöfðaeyja undir lokin. Argentínumenn vildu fá vítaspyrnu undir lokin þegar boltinn fór af höfðinu á Roberto Lopes og í höndina en ekkert dæmt.
Messi fékk síðasta tækifærið þegar hann skaut undir vegginn úr aukaspyrnu en Vozinha náði að verja.
Það þurfti því að grípa til framlengingar þar sem Argentína var ekki lengi að láta til sín taka. Lisandro Martinez skoraði með föstu skoti í nærhornið af stuttu færi eftir aðeins þriggja mínútna leik.
Grænhöfðaeyjar voru ekkert á því að gefast upp. Sidny Lopes Cabral jafnaði metin með stórkostlegu skoti. Hann var við vítateigshornið og skaut í bláhornið á fjær.
Argentína stóð uppi sem sigurvegari þar sem Diney Borges varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir hornspyrnu frá Messi.
Argentína mætir Egyptalandi í 16-liða úrslitum en Grænhöfðaeyjar eru úr leik eftir hetjulega baráttu.