Simón á spjöld sögunnar

Simón í leik með Spáni.

Mynd: EPA

Simón í leik með Spáni.

Mynd: EPA

Unai Simón, markvörður spænska landsliðsins, skráði sig á spjöld sögunnar þegar hann hélt hreinu í 3-0 sigri Spánar á Austurríki í 32-liða úrslitum HM sem nú fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Hinn 29 ára gamli Simon, sem spilar með Athletic Bilbao, í heimalandinu hefur verið aðalmarkvörður Spánar undanfarin ár og hefur nú leikið 62 A-landsleiki.
Þrátt fyrir að bæði David Raya, markvörður Arsenal, og Joan Garcia, markvörður Barcelona, hafi verið frábærir á síðustu leiktíð kom aldrei til greina að skipta Simón út.
Eðlilega svo sem þar sem hann hefur verið frábær milli stanganna undanfarin misseri og á meðal annars stóran þátt í því að Spánn er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Englandi í úrslitum EM 2024. Ofan á það varði Simón tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppni þegar Spánn lagði Króatíu í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar ári fyrr.
En að því sem kom Simón á spjöld sögunnar. Með því að halda hreinu gegn Alsír hefur Simón nú haldið hreinu í 519 mínútur í röð. Hann hefur þar með slegið met hins ítalska Walter Zenga frá HM 1990 á Ítalíu.
Ólíkt Zenga þá er Simón að tengja saman tvær keppnir. Hans met hófst nefnilega í Katar árið 2022. Þar lék hann síðustu 39 mínútur leiksins gegn Japan án þess að fá á sig mark og hélt svo hreinu í 120 mínútur gegn Marokkó þar sem Spánn mátti hins vegar þola tap í vítaspyrnukeppni.
Í ár hefur Simón svo ekki enn fengið á sig mark. Í riðlakeppni lék hann alls þrjá leiki - gegn Grænhöfðaeyjum, Sádi-Arabíu og Úrúgvæ - án þess að fá á sig mark sem og leikinn gegn Austurríki. Sló hann þar með met Zenga og tók jafnframt fram úr samlanda sínum Iker Casillas ásamt þeim Peter Shilton, Sepp Maier og Gianluigi Buffon.
Nú er að bíða og sjá hvað Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal gera gegn ógnarsterkum Spánverjum í 16-liða úrslitum. Sá leikur fer fram í Seattle þann 6. júlí næstkomandi.

UNAI SIMÓN Y UNA MARCA HISTÓRICA: se convierte en el arquero con más minutos (519) sin recibir goles en Mundiales, superando lo hecho por el italiano Walter Zenga.#ESPNMundial
— SportsCenter (@SC_ESPN) July 2, 2026
???? Mirá los mejores partidos de la #FIFAWorldCup por ESPN, en el Plan Premium de #DisneyPlus pic.twitter.com/jXCe7K7wYw