Fotbolti.net
04.07.26 - 12:07
Brynjar Ingi Erluson

Vildi ekki þjást lengur og íhugaði að hætta - „Ég var ótrúlega langt niðri“

Lisandro Martínez fagnar gegn Grænhöfðaeyjum

Lisandro Martínez fagnar gegn Grænhöfðaeyjum

Canon

Mynd: EPA

Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martínez segist hafa íhugað að hætta í fótbolta eftir að hann sleit krossband í leik með Manchester United á síðasta ári.
HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum
TENGT EFNI

HM: Hetjuleg frammistaða Grænhöfðaeyja gegn heimsmeisturunum

Martínez meiddist illa gegn Crystal Palace í febrúar á síðasta ári og tók við langt endurhæfingarferli sem reyndist honum afar erfitt.

Hann sneri aftur í nóvember á síðustu leiktíð og var síðan valinn í argentínska landsliðið fyrir heimsmeistaramótið.

Miðvörðurinn skoraði og lagði upp í 3-2 sigri Argentínu á Grænhöfðaeyjum í 32-liða úrslitum í gær. Eftir leikinn greindi hann frá því að hann hefði íhugað að hætta í fótbolta, en eiginkona hans og nýfædd dóttir veittu honum innblástur til að halda áfram.

„Ég íhugaði að hætta í fótbolta eftir að ég sleit krossband á síðasta ári. Ég vildi ekki þjást lengur.“

„Ég var ótrúlega langt niðri, en svo fæddist dóttir mín og það kom þessu öllu í jafnvægi. Ég sá það magnaða framlag sem eiginkona mín lagði í fæðinguna og sagði við sjálfan mig: Hvernig get ég ekki barist áfram eftir þetta?“
sagði Martínez.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.