Aron Einar: Búinn að vera tæpur í fjögur ár
Auglýsing

Aron Einar æfði með Íslandi í dag. Hér er hann á æfingunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsfyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson, býst við að ná bæði leiknum við Finnland og Tyrkland á næstu dögum en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Hann hefur misst af síðustu leikjum með Cardiff vegna þeirra en hann er að ná sér.

„Ég missti af þrem leikjum með Cardiff en landsleikirnir koma á þeim tímapunkti að ef ég hefði átt leik með Cardiff á fimmtudaginn, hefði ég náð honum. Þetta er búið að vera kapphlaup við tímann.\"
„Ég er nokkuð góður, finn ekkert fyrir þessu núna og er mjög jákvæður á að ná báðum leikjunum. Ég er búinn að vera tæpur í fjögur ár þegar kemur að landsleikjum.\"
Hann býst við erfiðum leik gegn Finnum þar sem þolinmæði er mjög mikilvæg.
„Þetta verður þolinmæðis vinna og þetta verður erfiður leikir, við höfum átt erfitt með lið sem hafa legið til baka. Þeir verða þéttir en vonandi náum við að brjóta þá niður,\" sagði Aron.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.