Fotbolti.net
20.10.26 - 08:15
Innkastið

Besti þjálfarinn 2026 - Hefur tekið þessa skál og hrært vel í henni

Óskar Hrafn Þorvaldsson (KR)

Óskar Hrafn er þjálfari ársins.

Óskar Hrafn er þjálfari ársins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Innkastinu var opinberað val á þeim bestu í Bestu deild karla 2026. Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR er þjálfari ársins.

Eftir að hafa rambað á barmi falls í fyrra hefur KR innsiglað annað sæti deildarinnar og er langlíklegasta liðið til að veita Víkingi samkeppni um Íslandsmeistaratitilinn á næsta ári.

En Óskar fær þennan titil ekki síst fyrir skemmtanagildið enda lið KR eitt það skemmtilegasta í sögu íslenska fótboltans.
Atli Viðar Björnsson, fyrrum markahrókur, telur að Óskar Hrafn hafi komið með ferska nálgun inn í íslenskan fótbolta og hrist upp í hefðbundnum hugmyndum um hvernig eigi að spila leikinn.

„Það er klárt mál að Óskar Hrafn hefur tekið þessa skál og hrært vel í henni. Leikstíll KR síðustu tvö árin hefur verið athyglisverður og sérstaklega áberandi í sumar,“ segir Atli.

Hann segir þennan leikstíl hafa gert KR að skemmtilegu liði til að fylgjast með og bendir meðal annars á að liðið eigi tvo markahæstu leikmenn deildarinnar; Aron Sigurðarson og Eið Gauta Sæbjörnsson.

„Óskar Hrafn hefur verið ákveðin lukka fyrir okkur sem fylgjumst með íslenskum fótbolta. Hann hefur hrist upp í hefðbundnum hugmyndum og komið með nýja nálgun á leikinn."

Það er áhugavert að velta fyrir sér hvort sóknarsinnaður leikstíll KR hafi haft áhrif á önnur lið í deildinni. Atli vill ekki fullyrða að svo sé, en telur þróunina mögulega benda til þess að hugmyndir um hvernig eigi að spila íslenskan fótbolta séu að breytast.

„Ég veit það ekki fyrir víst, en ég gæti alveg trúað því. Mér finnst fótboltinn almennt vera orðinn opnari og fleiri lið leggja meiri áherslu á slíkan leik en áður. Áherslan var oft á að byrja á því að verjast og verja eigið mark,“ segir hann.

Sjá einnig:
Sölvi Geir Ottesen besti þjálfarinn 2025
Halldór Árnason besti þjálfarinn 2024
Arnar Gunnlaugsson besti þjálfarinn 2023
Óskar Hrafn Þorvaldsson besti þjálfarinn 2022
Arnar Gunnlaugsson besti þjálfarinn 2021
Heimir Guðjónsson besti þjálfarinn 2020
Rúnar Kristinsson besti þjálfarinn 2019
Ólafur Jóhannesson besti þjálfarinn 2018
Ólafur Jóhannesson besti þjálfarinn 2017
Willum Þór Þórsson besti þjálfarinn 2016
Heimir Guðjónsson besti þjálfarinn 2015
Rúnar Páll Sigmundsson besti þjálfarinn 2014
Rúnar Kristinsson besti þjálfarinn 2013
Heimir Guðjónsson besti þjálfarinn 2012
Rúnar Kristinsson besti þjálfarinn 2011
Besti þjálfarinn 2026 - Hefur tekið þessa skál og hrært vel í henni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.