Fotbolti.net
04.10.17 - 22:30
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá: Antalya í Tyrklandi

Jón Daði: Betra að spila í svona en á tómum velli

Auglýsing
Jón Daði: Betra að spila í svona en á tómum velli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Það eru topp aðstæður hér og allir spenntir fyrir gríðarlega skemmtilegum leik,\" sagði Jón Daði Böðvarsson, framherji íslenska landsliðsins, fyrir leikinn gegn Tyrklandi á föstudag.
Jón Daði vonast auðvitað til að byrja leikinn.

„Ég er bjartsýnn eins og hver annar. Það gekk vel í síðasta leik og vonandi, hvort maður byrjar eða ekki, nær maður að halda sama dampi áfram,\" sagði hann.

„Við þurfum fyrst og fremst að spila góðan varnarleik og spila eins og við spilum venjulega. Allir þurfa að eiga frábæran leik, hvern einasti leikmaður, og vonandi náum við því.\"

Það verða mikil læti á leiknum á föstudag, en Jón Daði býst ekki við því að það muni trufla eitthvað.

„Nei, alls ekki. Það eina er að þú heyrir kannski aðeins minna í samherjanum en venjulega. Mér finnst betra að spila í svona en á tómum velli.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.