Fotbolti.net
04.10.26 - 18:00
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Ása og Nia í banastuði - Þór/KA vann tímamótaleik - Agla María í fámennan hóp

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði þrennu í dag og er orðin markahæst í Bestu deildinni.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði þrennu í dag og er orðin markahæst í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Nia Christopher skoruðu samtals sjö af tíu mörkum Breiðabliks og FH í 21. umferð Bestu deildar kvenna í dag þegar liðin sem heyja einvígið um Íslandsmeistaratitilinn lögðu Þrótt og ÍBV að velli.

Þar með hafa leikmenn FH skorað þrennu, fernu og fimmu á yfirstandandi keppnistímabili.

Fallbaráttunni lauk á föstudagskvöldið og þar ber hæst besta árangur Fram í tæplega hálfa öld ásamt óvenjulegum stigafjölda liðanna sem féllu úr deildinni. Þór/KA hélt sæti sínu með fræknum sigri á Víkingi, sem jafnframt var mikill tímamótaleikur fyrir Akureyrarliðið.

Agla María Albertsdóttir náði stórum áfanga á ferlinum á dögunum og þær Úlfa Dís Úlfarsdóttir, Telma Ívarsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir gerðu það reyndar líka og nánar er fjallað um það og margt fleira í þessari grein.

Miklar sviptingar eru í baráttunni um gullskóinn í Bestu deild kvenna, ekki síður en í einvígi Breiðabliks og FH. Þar stendur Breiðablik áfram best að vígi þó útlitið hafi ekki verið gott í hálfleik gegn Þrótti þegar Kópavogsliðið var þremur mörkum undir. En eftir stórsigur FH á ÍBV er markatala liðanna orðin nánast jöfn.

Breiðablik gæti þó orðið meistari í næstu umferð ef FH misstígur sig, annars verður hreinn úrslitaleikur á Kópavogsvelli í lokaumferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.