04.11.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Eitt af afrekum sumarsins"

Fram gerði vel í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram gerði vel í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það spáðu því allflestir að Fram myndi enda í tíunda sæti Bestu deildar kvenna í sumar.
Annað kom þó á daginn og liðið var búið að bjarga sér frá falli fyrir lokaumferðina. Frábær árangur hjá Frömurum sem þurfa núna að byggja á þessum árangri.

„Þetta er eitt af afrekum sumarsins að þær hafi verið í þeirri stöðu sem þær voru í fyrir lokaumferðina," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum. „Þær mega vera ótrúlega sáttar við þetta tímabil."
„Miðað við stöðuna sem var fyrir tímabilið þá geta þær farið spenntar inn í næsta tímabil miðað við hvernig gekk og ég held að þær geti núna fengið leikmenn."
Arnar telur að Fram geti núna sannfært fleiri leikmenn um að koma til félagsins eftir gott tímabil en í risastóra íslenska slúðurpakkanum sem birtur var á Fótbolta.net í síðasta mánuði voru Bergdís Sveinsdóttir úr Víkingi og Emma Nicole Phillips úr Grindavík/Njarðvík orðaðar við félagið.