Fotbolti.net
04.11.26 - 07:45
Elvar Geir Magnússon

Man Utd íhugar að gera tilboð í leikmann Man City

Rayan Ait-Nouri.

Rayan Ait-Nouri.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Varnarmaður Manchester City er á blaði hjá Manchester United, Liverpool vinnur að því að fá miðjumann Mónakó og aðstoðarþjálfari Englands er orðaður við stjórastarf Palace. Þetta og fleira í áhugaverðum slúðurpakka.
Manchester United íhugar að reyna að fá vinstri bakvörðinn Rayan Ait-Nouri (25) frá Manchester City. Samningsatriði við þennan alsírska landsliðsmann ættu ekki að vera nein hindrun fyrir mögulegum félagaskiptum. (Florian Plettenberg)

Liverpool vinnur að því bak við tjöldin að fá senegalska miðjumanninn Lamine Camara (22) frá Mónakó. Chelsea vill einnig fá leikmanninn og Mónakó vill fá nálægt 60 milljónum punda fyrir hann. (Football365)

Anthony Barry, aðstoðarlandsliðsþjálfari enska landsliðsins, hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki Pierre Sage, ef Crystal Palace ákveður að reka franska stjórann. (Mirror)

Ekvadorski varnarmaðurinn Piero Hincapie (24) hjá Arsenal er á óskalista Deco, íþróttastjóra Barcelona, yfir miðverði sem félagið gæti reynt að fá. (Sport)

Bayern München fylgist áfram með fyrirliða Arsenal, Martin Ödegaard (27), en óvissa ríkir um framtíð norska miðjumannsins hjá Lundúnaliðinu. (Caughtoffside)

Spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi (27) er opinn fyrir því að yfirgefa Arsenal í félagaskiptaglugganum í janúar. (TeamTalk)

Sádi-arabíska félagið Al-Hilal er hætt að horfa til Bruno Fernandes (32) hjá Manchester United þrátt fyrir að félagið hafi verið nálægt því að semja við hann í upphafi tímabils. (Talksport)

Tottenham hyggst ekki selja sænska miðjumanninn Lucas Bergvall (20) þrátt fyrir áhuga frá Barcelona og Napoli. (Football Insider)

Unai Emery, stjóri Aston Villa, er á fimm manna lista Manchester United yfir mögulega arftaka Michael Carrick. Talið er þó að núverandi skipulag hjá United henti spænska þjálfaranum illa. (Daily Mail)

Kelvin Yeboah (26), sóknarmaður Minnesota United og frændi Tony Yeboa, gamallar hetju Leeds og Gana, er á óskalista nokkurra félaga í ensku úrvalsdeildinni. Everton, Crystal Palace og Sunderland eru öll á höttunum eftir framherjanum. (Talksport)

Leikmenn Newcastle telja að áhættusamar ákvarðanir félagsins á leikmannamarkaðnum í sumar séu helsta ástæðan fyrir erfiðleikum liðsins á þessu tímabili. (Telegraph)
Liverpool hefur áhuga á Lamine Camara.

Liverpool hefur áhuga á Lamine Camara.

Canon

Mynd: EPA

Anthony Barry.

Anthony Barry.

Canon

Mynd: EPA

Spurs ætla ekki að selja Lucas Bergvall.

Spurs ætla ekki að selja Lucas Bergvall.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.