04.11.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Meiðsli Baleba líta ekki vel út

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Kamerúnski miðjumaðurinn Carlos Baleba gæti verið frá næstu vikur og jafnvel út árið eftir að hafa meiðst í 3-2 sigri Manchester United á Roma í Meistaradeildinni í gær.
Baleba meiddist í upphafi síðari hálfleiks þegar hann var kominn í skotstöðu inni í vítateignum. Hann fann þá skyndilega fyrir miklum sársauka aftan í læri og þurfti að yfirgefa völlinn.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir Manchester United, sem vann sinn fyrsta leik síðan í september og þarf sárlega á öllum sínum kröftum að halda til að koma sér aftur á réttan kjöl.
Michael Carrick, stjóri United, sagði að meiðsli Baleba litu ekki vel út.
„Ég hef ekki frekari fréttir af Carlos á þessari stundu, en þetta virðast augljóslega vera meiðsli aftan í læri. Við verðum að sjá hvernig staðan verður, en við fyrstu sýn lítur þetta ekki sérstaklega vel út.“
„Hversu lengi hann verður frá? Ég get ekki sagt neitt meira um það eins og staðan er núna,“ sagði Carrick.
Baleba gekk til liðs við United frá Brighton í sumar, en lék ekki sinn fyrsta leik fyrir félagið fyrr en í síðasta mánuði vegna meiðsla sem höfðu haldið honum frá keppni.