Fotbolti.net
04.11.26 - 10:05
Elvar Geir Magnússon

Parker orðinn stjóri West Ham (Staðfest)

Parker orðinn stjóri West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

West Ham hefur staðfest ráðningu á Scott Paker en hann hefur undirritað tveggja og hálfs árs samning. Parker er fyrrverandi leikmaður West Ham.

Hinn 46 ára gamli Parker tekur við af Nuno Espirito Santo, sem var rekinn í gær í kjölfar slæmrar byrjunar liðsins í Championship-deildinni.

Parker hefur á stjóraferlinum stýrt Fulham, Bournemouth og Burnley upp úr Championship-deildinni en hann hefur verið án starfs síðan hann yfirgaf Burnley í apríl, eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Parker mun stýra liðinu í fyrsta sinn í kvöld, þegar West Ham sækir Cardiff City heim.
Mark Noble, fyrrum liðsfélagi Parker, mun vinna náið með honum í hlutverki sínu sem íþróttastjóri. Þá verða Steve Potts, Gerard Prenderville og Billy Lepine í þjálfarateyminu.

„Það er mikið stolt fyrir mig að taka við þessu hlutverki og snúa aftur til félags sem hefur svo mikla þýðingu fyrir mig og fjölskyldu mína,“ sagði Parker við vefsíðu félagsins.


Parker orðinn stjóri West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Stoke City17+835
3Wolves17+1234
4Birmingham17+1532
5West Brom17+1032
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12Blackburn17025
13West Ham17+1324
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall17-618
19Bolton17-1118
20Watford17-1515
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley17-1111
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.