Fotbolti.net
04.11.26 - 12:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rafa Nadal í stjórn Real Madrid

Rafa Nadal í stjórn Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Tennisgoðsögnin Rafa Nadal verður eftir rúmar tvær vikur tekinn inn í stjórn Real Madrid. Frá þessu greinir félagið með yfirlýsingu í dag. Hann er eitt stærsta nafnið í spænskri íþróttasögu.

Spánverjinn, sem kallaður er konungur leirsins í tennisheimum, vann á sínum ferli 22 stórmót í tennis sem er það næstmesta í sögunni. Þar af vann hann 14 titla á opna franska sem spilað er á leirvöllum.

Hann var í samtals 209 vikur á sínum ferli í efsta sæti heimslistans.
Nadal er stuðningsmaður Real og hefur verið heiðursfélagi hjá Real Madrid í mörg ár.

Nadal mun leggja til reynslu sína af keppni á hæsta stigi ásamt stefnumótandi sýn sinni á íþróttastjórnun. Hlutverk hans mun felast í því að efla ímynd félagsins og taka þátt í mikilvægum þróunarverkefnum á heimsvísu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.