Fotbolti.net
04.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sýnir fram á að graslið hagnast ekki á undirlaginu

Sýnir fram á að graslið hagnast ekki á undirlaginu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingurinn Jóhann Ægir Arnarsson gerði lokaverkefni í Háskólanum í Reykjavík, rannsóknarverkefni, þar sem hann bar saman muninn á gervigrasi og náttúrulegu grasi í íslenskum fótbolta.

FH er, eins og frægt er orðið, eitt af fáum liðum sem hefur haldið í náttúrulega grasið. Gervigrasvöllum er alltaf að fjölga og næsta vígið sem fellur verður á Skaganum. Þegar Skagamenn verða komnir með gervigras á keppnisvöll verða einungis FH-ingar og Keflvíkingar eftir með náttúrulegt gras á keppnisvellinum.

Það heyrðist af því í kjölfar ritgerðarinnar að FH-ingar væru alvarlega að íhuga á að fara í breytingu á undirlagi eftir að hafa séð niðurstöðu rannsóknarinnar.
Jóhann Ægir rýndi í 1134 leikir á tímabilinu 2022-2025, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni. Á þeim árum voru bestu liðin Víkingur, Breiðablik, Stjarnan og Valur og þau spiluðu öll á gervigrasi.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hæsta sigurhlutfallið (56%) var hjá liðum sem spila sína leiki á gervigrasi þegar þau fengu lið sem spila heimaleiki sína á náttúrulegu grasi í heimsókn. Þeir leikir sýndu einnig hærra gildi í sóknar- og sóknartengdum breytum.

Á náttúrulegu grasi var hins vegar hærra gildi í einvígum, endurheimtum á boltanum og töpuðum boltum. Leikstaður og heimavöllur reyndust þeir þættir sem höfðu mest áhrif á frammistöðu.

Eitt af því sem gerir rannsóknina sérstaka er að hún skoðar þetta innan sömu deilda á Íslandi, þar sem bæði gervigras og náttúrugras er á völlum. Það gerir samanburðinn áreiðanlegri og sýnir að leikyfirborð er mikilvægur þáttur sem getur haft áhrif á bæði frammistöðu liða og úrslit leikja.

Niðurstöðurnar benda til þess að leikvöllur sé mikilvægur ytri þáttur í knattspyrnu og að kunnugleiki á leikvelli geti veitt forskot í íslenskri knattspyrnu. Undirlagið sem spilað er á skiptir raunverulegu máli.

Ef Ísland vill ná eins góðum árangri og hægt er í Evrópukeppnum félagsliða og mögulega í landsliðsfótbolta þá gæti væri sniðug leið fyrir félög að leggja gervigras á sína velli.

Hlekkur á ritgerðina
Gervigras.

Gervigras.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gras.

Gras.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sigurhlutfall út frá undirlagi. Hæsta hlutfallið er í Bestu deildinni þar sem lið á gervigrasi (59%) tekur á móti liði sem spilar sína heimaleiki á náttúrulegu gervigrasi.

Sigurhlutfall út frá undirlagi. Hæsta hlutfallið er í Bestu deildinni þar sem lið á gervigrasi (59%) tekur á móti liði sem spilar sína heimaleiki á náttúrulegu gervigrasi.

Canon

Mynd: JÆA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.