04.11.26 - 15:26
Enski boltinn
„Það vantaði klókindi þarna í Svíann"

Alexander Isak.

Mynd: EPA

Andy Madley, dómari.

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister.

Mynd: EPA

Alexander Isak.

Mynd: EPA
Það var mikið rætt um störf dómarans Andy Madley eftir 0-1 sigur Arsenal gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.
Þá var aðallega rætt um mögulega vítaspyrnu sem Liverpool hefði átt að fá þegar Jurrien Timber, varnarmaður Arsenal, togaði í sóknarmanninn Alexander Isak innan teigs.

TENGT EFNI
Iraola: Synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér
Isak henti sér ekki niður og kvartaði ekki mikið, en það var augljóslega togað í hann.
„Liverpool reyndi að kalla eftir svona fimm vítum en það var allavega víti þegar það var tosað í Isak þegar hann er að fara upp í skallabolta. Það var klárlega víti," sagði Haraldur Örn Haraldsson í Enski boltinn hlaðvarpinu.
„Isak gerir bara ekki nægilega mikið úr því. Hann sætti sig við að það væri ekki dæmt á þetta eða þá býst við því að VAR grípi inn í sem þeir eiga náttúrulega að gera."
„Svo átti Noni Madueke allan daginn að fá seinna gula spjaldið þegar hann fer með hausinn í Mac Allister," bætti Haraldur við. „Mac Allister mjólkar þetta alveg gríðarlega, en þetta er samt alveg gult spjald."
„Það er alveg spurning hvort Madueke hefði ekki átt að fá beint rautt. Mac Allister er ekki mikið skárri í þessu augnabliki því hann slær Ödegaard í hnakkann," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í þættinum.
Hefði Isak ekki átt að gera meira úr atvikinu?
„Stundum þarf það bara til svo að dómarar dæmi á brot," sagði Magnús Atlason.
„Hann er að reyna að ná þessum skallabolta og ég skil það alveg að hann kasti sér ekki beint í jörðina þegar hann sér marktækifæri fyrir framan sig, en það vantaði klókindi þarna í Svíann," sagði Haraldur Örn.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.