04.12.20 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Nágrannaslagur í London

Tottenham mætir Arsenal

Mynd: Getty Images

Tottenham mætir Arsenal

Mynd: Getty Images
11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina en Tottenham og Arsenal mætast á sunnudag í stærsta leik helgarinnar.
Aston Villa og Newcastle áttu að mætast í kvöld en var frestað vegna eftir að það kom upp hópsmit hjá Newcastle.
Því hefst umferðin á morgun. Landsliðsmennirnir Jóhann Berg Guðmundsson og Gylfi Þór Sigurðsson eigast við á Turf Moor er Burnley spilar við Everton. Tímabilið fór vel af stað hjá Everton en liðið hefur verið í basli í síðustu leikjum og situr nú í áttunda sæti, fimm stigum frá toppnum.
Pep Guardiola og hans menn í Manchester City fá nýliða Fulham í heimsókn á Etihad-leikvanginn klukkan 15:00 og þá mætast West Ham og Manchester United á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum klukkan 17:30.
Chelsea og Leeds eigast þá við í kvöldleiknum. Á sunnudaginn hefst veislan í hádeginu á leik WBA og Crystal Palace. Sheffield United mætir Leicester klukkan 14:15 áður en stórleikur helgarinnar fer fram.
Tottenham fær þá nágranna sína í Arsenal í heimsókn. Tottenham er í efsta sæti deildarinnar ásamt Liverpool á meðan Arsenal er í 14. sæti deildarinnar með aðeins 13 stig. Lokaleikur dagsins er svo leikur Liverpool og Wolves þar sem Diogo Jota mætir sínum gömlu félögum á Anfield.
Leikir helgarinnar:
Laugardagur:
12:30 Burnley - Everton
15:00 Man City - Fulham
17:30 West Ham - Man Utd
20:00 Chelsea - Leeds
Sunnudagur:
12:00 West Brom - Crystal Palace
14:15 Sheffield Utd - Leicester
16:30 Tottenham - Arsenal
19:15 Liverpool - Wolves

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Brighton | 1 | +4 | 3 |
| 2 | Arsenal | 1 | +3 | 3 |
| 3 | Brentford | 1 | +3 | 3 |
| 4 | Everton | 1 | +2 | 3 |
| 5 | Hull City | 1 | +2 | 3 |
| 6 | Ipswich Town | 1 | +1 | 3 |
| 7 | Leeds | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Man City | 1 | +1 | 3 |
| 9 | Liverpool | 1 | 0 | 1 |
| 10 | Newcastle | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Bournemouth | 1 | -1 | 0 |
| 14 | Sunderland | 1 | -1 | 0 |
| 15 | Nott. Forest | 1 | -1 | 0 |
| 16 | Man Utd | 1 | -2 | 0 |
| 17 | Crystal Palace | 1 | -2 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 18 | Tottenham | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Coventry | 1 | -3 | 0 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Aston Villa | 1 | -4 | 0 |