Tveir leikir fóru fram í Bose Bikarnum í dag. Víkingur og FH mættust í B-riðli á Víkingsvelli og þá mættust Breiðablik og Stjarnan á Kópavogsvelli.
Íslandsmeistararnir unnur 3-1 sigur á FH í dag þar sem Kristall Máni Ingason gerði fyrsta mark leiksins. Logi Tómasson skoraði annað mark Víkings en Matthías Vilhjálmsson minnkaði muninn. Það var svo Karl Friðleifur Gunnarsson sem gulltryggði sigurinn.
Byrjunarlið Víkings í leiknum var: Ingvar, Davíð, Karl, Atli, Logi, Júlíus, Axel, Erlingur, Adam, Helgi og Kristall
Byrjunarlið FH: Gunnar, Hörður, Gummi K, Eggert, Haraldur, Björn D, Logi Hrafn, Kristinn F, Baldur Logi, Jónatan, Matti
Þá vann Breiðablik 3-2 sigur á Stjörnunni. Kristinn Steindórsson gerði tvennu fyrir Breiðablik alveg eins og Ísak Andri Sigurgeirsson fyrir Stjörnuna. Óskar Örn Hauksson spilaði fyrri hálfleikinn í liði Stjörnunnar.
Byrjunarlið Breiðabliks í leiknum var: Anton, Finnur Damir, Elfar Davíð, Andri, Oliver, Anton, Sölvi, Kristinn, Gísli.
Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á sem varamaður hjá Breiðablik í dag.
Byrjunarlið Stjörnunnar: Halli, Óli Valur, Björn Berg, Sindri, Þórarinn, Óskar, Einar, Hilmar, Þorsteinn, Emil, Ísak.
Víkingur 3-1 FH
1-0 Kristall Máni Ingason
2-0 Logi Tómasson
2-1 Matthías Vilhjálmsson
3-1 Karl Friðleifur Gunnarsson
Breiðablik 3-2 Stjarnan
1-0 Gísli Eyjólfsson
1-1 Ísak Andri Sigurgeirsson
2-1 Kristinn Steindórsson
3-1 Kristinn Steindórsson
3-2 Ísak Andri Sigurgeirsson
Athugasemdir