Fotbolti.net
01.10.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

De la Fuente: Því miður er Wirtz ekki með spænskt vegabréf

De la Fuente: Því miður er Wirtz ekki með spænskt vegabréf
Canon

Mynd: EPA

Luis de la Fuente landsliðsþjálfari Spánar svaraði spurningum frá þýska miðlinum BILD.
Carragher: Wirtz á ekki að vera í liðinu gegn Man City
TENGT EFNI

Carragher: Wirtz á ekki að vera í liðinu gegn Man City

Spánverjar eru ríkjandi heims- og Evrópumeistarar undir stjórn De la Fuente og hefur þjálfarinn miklar mætur á þýskri fótboltasögu, enda er Þýskaland eitt af allra stærstu stórveldum sögunnar í fótboltaheiminum ásamt Ítalíu og Brasilíu.

„Þegar ég var barn dáðist ég að Günter Netzer hjá Real Madrid, hann var ótrúlegur leikmaður sem gaf magnaðar draumasendingar," sagði De la Fuente og minntist einnig á bakvörðinn Paul Breitner sem lék með Real Madrid í þrjú ár.

De la Fuente var þá spurður hvort það væri einhver leikmaður þýska landsliðsins sem hann myndi vilja hafa í spænska landsliðinu sínu.

„Florian Wirtz! Hvílíkur leikmaður sem hann er. Því miður er hann ekki með spænskt vegabréf... mér líkar mjög vel við hans leikstíl."
De la Fuente: Því miður er Wirtz ekki með spænskt vegabréf
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.