01.10.26 - 09:20
Elvar Geir Magnússon
Dæmdi óvænt á Hlíðarenda í sumar og dæmir landsleik Íslands gegn Búlgaríu

Balazs Berke og Tryggvi Hrafn Haraldsson ræða málin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ungverski dómarinn Balazs Berke mun dæma viðureign Íslands og Búlgaríu í Þjóðadeildinni á laugardaginn.
Berke var fjórði dómari þegar Valur og Nordsjælland mættust á Hlíðarenda í forkeppni Sambandsdeildarinnar í sumar (í leik sem endaði 0-2). Hann endaði með flautuna því hann tók við sem aðaldómari í lok fyrri hálfleiksins eftir að Gergo Bogar tognaði aftan í kálfa.

Berke, sem dæmir mikið í Evrópudeildinni, er því að fara að dæma annan leik sinn á Íslandi þetta árið.
Allt teymið á leik Íslands og Búlgaríu kemur frá Ungverjalandi en Tamas Bognar verður VAR dómari.
Ísland er á toppi riðilsins með fjögur stig en Búlgaría er aðeins með eitt stig.