Lið vikunnar í enska - Arsenal og Tottenham eiga tvo

Lee Grant (Stoke) - Hélt hreinu gegn Watford. Í gær keypti Stoke síðan Grant í sínar raðir en hann hefur verið á láni hjá félaginu í vetur.

Mynd: Getty Images

Angel Rangel (Swansea) - Skoraði sjaldséð sigurmark gegn Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

Toby Alderweireld (Tottenham) - Var með sóknarmenn Chelsea í góðri gæslu í gær.

Mynd: Getty Images

Gareth McAulaey (WBA) - Skoraði í sigrinum á Hull.

Mynd: Getty Images

Gael Clichy (Man City) - Skoraði fyrra mark City í 2-1 sigri á Burnley.

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez (Arsenal) - Byrjaði endurkomu Arsenal gegn Bournemouth með skallamarki.

Mynd: Getty Images

Dele Alli (Tottenham) - Þessi tvítugi leikmaður skoraði tvívegis með skalla gegn Chelsea í gærkvöldi.

Mynd: Getty Images

Ross Barkley (Everton) - Var mjög skapandi í 3-0 sigri Everton á Southampton.

Mynd: Getty Images

Marcus Rashford (Man Utd) - Kom inn á sem varamaður gegn West Ham og var mjög líflegur. Lagði upp fyrra markið.

Mynd: Getty Images

Jermain Defoe (Sunderland) - Var öruggur á vítapunktinum og skoraði bæði mörk Sunderland gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Olivier Giroud (Arsenal) - Lagði upp tvö mörk og skoraði síðan jöfnunarmarkið gegn Bournemouth.

Mynd: Getty Images




