Stærsta stjarna Bandaríkjanna fékk tvo í einkunn

Christian Pulisic.

Mynd: EPA

Christian Pulisic.

Mynd: EPA
Belgía vann öruggan 4-1 sigur gegn Bandaríkjunum á HM í nótt. ESPN dæmdi frammistöðu bandaríska liðsins og enginn fær lægri einkunn en stærsta stjarnan, Christian Pulisic.
Pulisic átti erfitt tímabil með AC Milan og það gekk ekkert upp hjá honum gegn belgíska liðinu. Hann tapaði boltanum margoft áður en hann var tekinn af velli.
Pulisic fær 2 af 10 í einkunn en markvörðurinn Matt Freese fékk einnig sömu einkunn frá ESPN.

TENGT EFNI
Óréttlætið kveikti bál í Belgum - Dönsuðu Trump dansinn
Folarin Balogun, sem mikið var í umræðunni fyrir leikinn, fékk 5 frá ESPN. FIFA hafði fyrir leik aflétt leikbanni Balogun eftir afskipti frá Donald Trump og hlaut það gríðarlega gagnrýni heimsbyggðarinnar. Flestir héldu með Belgum í nótt.
„Þetta mál hafði ekki áhrif á frammistöðu okkar. Það er engin afsökun, þetta var ekki okkar dagur. Mitt starf er að þjálfa liðið og burt séð frá umtali um pólitík og slíkt þá er ég vonsvikinn með frammistöðuna inni á vellinum," segir Mauricio Pochettino, þjálfari Bandaríkjanna.