Fotbolti.net
07.07.26 - 08:58
Elvar Geir Magnússon

Óréttlætið kveikti bál í Belgum - Dönsuðu Trump dansinn

Raskin fagnar eftir að hafa lagt upp mark.

Raskin fagnar eftir að hafa lagt upp mark.

Canon

Mynd: EPA

Hversu mikil áhrif hafði farsinn á leikmenn Bandaríkjanna og Belgíu í 16-liða úrslitum HM í nótt? FIFA hafði fyrir leik aflétt leikbanni Folarin Balogun, sóknarmanni Bandaríkjanna, eftir afskipti frá Donald Trump.

Balogun hafði fengið rautt spjald gegn Bosníu og Hersegóvínu en slapp frá því að taka út leikbann og var í byrjunarliðinu gegn Belgíu.

Belgía var miklu betra liðið í leiknum og vann 4-1. Margir fjölmiðlar segja að gestgjafarnir hafi dottið út á skammarlegan hátt og sparkspekingar keppast við að segja að þetta stórfurðulega mál hafi haft áhrif á bæði lið.

Eftir afskipti Trump og ákvörðun FIFA fékk Belgía klárlega stuðning frá stærstum hluta heimsbyggðarinnar í leiknum í nótt.
HM: Símtalið frá Trump kveikti í Belgum - Bandaríkin úr leik
TENGT EFNI

HM: Símtalið frá Trump kveikti í Belgum - Bandaríkin úr leik

„Það hefur mikið gengið á utan vallar síðustu tvo daga. Okkur fannst við vera beittir óréttlæti og vorum ákveðnir í að svara inni á vellinum," segir Nicolas Raskin, leikmaður Belgíu.

Youri Tielemans, fyrirliði Belga, segir að þetta sérkennilega mál hafi virkað sem vítamínsprauta.

„Við sögðum við okkur sjálfa að við þyrftum að svara inni á vellinum. Og við gerðum það," segir Tielemans.

Eftir að hafa skorað fjórða markið mátti sjá leikmenn Belga dansa 'Trump dansinn' sem varð frægur í kosningabaráttu hans 2024. Þá kom skot á Instagram aðgangi belgíska landsliðsins þar sem var skrifað: 'Snúið þessu við'.


Lukaku fagnaði með því að heiðra Amadou Onana sem meiddist fyrr í leiknum.

Lukaku fagnaði með því að heiðra Amadou Onana sem meiddist fyrr í leiknum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.