Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 05. janúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Napoli vill fá Carrasco
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari Napoli, vill fá belgíska landsliðsmanninn Yannick Carrasco frá Dalian Yifang í Kína. Þetta kemur fram í Corriere dello sport.

Gattuso er stórhuga í janúargluganum en hann hefur þegar rætt við Inter um að fá Matteo Politano í skiptum fyrir Fernando Llorente.

Belgíski landsliðsmaðurinn Yannick Carrasco er einnig á ratsjánni en hann hefur spilað í Kína síðustu tvö ár og vill komast aftur að í Evrópu.

Carrasco er 26 ára gamall en hann skoraði 15 mörk í 22 leikjum á síðasta tímabili með Yifang.
Athugasemdir
banner
banner
banner