banner
   sun 05. febrúar 2023 10:40
Aksentije Milisic
Wolves gerði grín að ummælum Klopp - Taldi þriðja markið ekki með
Mynd: EPA

Wolves tók á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær en heimamenn áttu ekki í neinum vandræðum á móti lánlausu liði gestanna frá Liverpool borg.


Joel Matip skoraði sjálfsmark eftir sjö mínútna leik og Craig Dawson bætti öðru markinu við stuttu síðar. Það var svo fyrirliðinn Ruben Neves sem kláraði leikinn með góðu marki í síðari hálfleiknum.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var með athyglisverð ummæli eftir leik þar sem hann taldi þriðja mark Wolves ekki með.

„Ég tel þriðja markið þeirra ekki með því það var í fyrsta skiptið sem þeir fóru yfir miðju í síðari hálfleiknum. Hin tvö mörkin hins vegar, að mæta til leiks eftir allt sem við ræddum í vikunni, var hörmuleg byrjun," sagði Klopp.

Twitter aðgangur Wolves ákvað að nýta tækifærið og gera grín að þessum ummælum Klopp. Félagið birti mynd eftir leik þar sem markið hjá Neves er tekið út og leiknum lokið með 2-0 sigri en ekki 3-0.


Athugasemdir
banner
banner