Kone gekkst undir vel heppnaða aðgerð

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ismael Kone, leikmaður kanadíska landsliðsins, gekkst undir aðgerð strax í gærkvöldi eftir að hafa fótbrotnað í 6-0 sigri liðsins gegn Katar í gær.
Kone fótbrotnaði strax í upphafi seinni hálfleiks eftir að Assim Madibo braut á honum.

TENGT EFNI
Snýr ekki aftur fyrr en í lok árs
„Ismael Kone gekkst undir vel heppnaða aðgerð í gærkvöldi vegna fótbrots. Búist er við því að hann nái fullum styrk en mun missa af restinni af HM 2026," segir í yfirlýsingu frá kanadíska sambandinu.
Kone leikur með Sassuolo á Ítalíu en félagið sendi einnig frá sér yfirlýsingu. Félagið sendir honum sínar bestu óskir og greinir frá því að hann muni hefja endurhæfingu á næstu dögum. Búist er við því að hann verði frá í fjóra til fimm mánuði.
Kone hafði byrjað í tveimur fyrstu leikjum Kanada. Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada, getur ekki kallað nýjan leikmann inn í hópinn. Lið gat aðeins kallað inn nýjan leikmann degi fyrir fyrsta leik.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!