Leeds að reyna við stóra bita sem hægt er að fá frítt

Julian Brandt

Mynd: EPA

Julian Brandt

Mynd: EPA
Leeds er að reyna fá Julan Brandt og Harry Wilson á frjálsri sölu samkvæmt heimildum Sky Sports.
Félagið er í harðri samkeppni við stór félög en Leeds gæti nælt í báða leikmennina.
Julan Brandt er þrítugur en hann er að yfirgefa Dortmund eftir sjö ár hjá þýska félaginu. Hann hefur spilað 48 landsleiki fyrir Þýskaland. Hann kom að fimmtán mörkum fyrir Dortmund á síðustu leiktíð.
Leeds hefur lengi haft áhuga á Wilson, vængmanni Fulham, og var nálægt því að næla í hann á lokadegi félagaskiptagluggans síðasta sumar.
Hann átti sitt besta tímabil í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann kom að sautján mörkum í deildinni. Samningur hans við Fulham rennur út um mánðarmótin.
Aston Villa og Everton hafa einnig áhuga á Wilson ásamt fleiri félögum í Evrópu sem spila í Meistaradeildinni.