Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“

Ismael Kone hefur lokið keppni á HM

Mynd: EPA

Ismael Kone hefur lokið keppni á HM

Mynd: EPA
Ismael Kone, leikmaður kanadíska landsliðsins, mun ekki leika meira á þessu móti og jafnvel ekki meira á árinu eftir að hafa fótbrotnað gegn Katar í annarri umferð B-riðils í kvöld.
Assim Omer Madibo fór aftan í Kone, sem lá óvígur eftir og var greinilega í áfalli. Löppin hékk illa og um augljóst fótbrot var að ræða.
Madibo var í kjölfarið rekinn af velli og leikmenn tókust á eftir atvikið. Madibo sjálfur var niðurlútur, enda virtist þetta ekki gert af ásetningi.
„Hann er fótbrotinn, þetta er hræðilegt. Mig langar til að gráta. Maður er bara sleginn yfir þessu atviki og maður finnur það líka á vellinum“ sagði Hörður Magnússon í lýsingu sinni á RÚV.
Stuttu eftir að leikurinn fór aftur af stað komust Kanadamenn í 4-0 með marki frá Nathan Saliba sem fagnaði því með að lyfta treyju Kone á loft.

???? - The Qatar player who made the tough foul on Ismael Kone is in tears as Kone is apparently injured. pic.twitter.com/4mP9uWZbpc
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) June 18, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!