Arsenal og Atlético sögð hafa náð saman um Alvarez – Gyökeres fer í hina áttina

Julian Alvarez er sagður á leið til Arsenal

Mynd: EPA

Arsenal hefur náð samkomulagi við Atlético Madríd um kaup á argentínska framherjanum Julian Alvarez. Svíinn Viktor Gyökeres fer í hina áttina en þetta kom fram í sjónvarpsþættinum El Chiringuito.
Framtíð Alvarez hefur verið mikið rædd síðustu vikur. Real Madrid er sagt hafa lagt fram 150 milljóna evra tilboð í leikmanninn, en Atlético neitaði því.
Barcelona hefur einnig lýst opinberlega yfir áhuga á Alvarez, sem fór illa í Atlético. Félagið brást við með því að birta myndir af leikmönnum Barcelona í Atlético-treyju.
Atlético hefur neitað að selja hann til Barcelona eða Real Madrid nema félögin samþykki að greiða 500 milljóna evra klásúlu hans.
Í þættinum El Chiringuito kom fram að Atlético væri búið að ná samkomulagi um sölu á Alvarez. Hann fari til Arsenal, sem greiði 50 milljónir evra, og Gyökeres fari í hina áttina eftir aðeins eitt ár hjá Englandsmeisturunum.
Gyökeres kom að 21 marki þegar Arsenal vann ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan 2004, en hann kom til félagsins frá Sporting á síðasta ári fyrir 70 milljónir evra.