Breiðablik 1 - 2 Valur
0-1 Sóley Edda Ingadóttir ('9 )
0-2 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('33 )
1-2 Sunna Rún Sigurðardóttir ('85 )
0-1 Sóley Edda Ingadóttir ('9 )
0-2 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('33 )
1-2 Sunna Rún Sigurðardóttir ('85 )
Valskonur fara vel af stað í Lengjubikarnum þetta árið en liðið vann Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks með tveimur mörkum gegn einu í riðli 2 í A-deildinni á Kópavogsvelli í kvöld.
Sóley Edda Ingadóttir og Arnfríður Auður Arnarsdóttir komu Val í tveggja marka forystu í fyrri hálfleiknum. Sóley Edda gerði mark sitt á 9. mínútu en hún kom til Vals undir lok ársins 2024. Arnfríður bætti við öðru marki á 33. mínútu, en hún samdi við félagið á svipuðum tíma og Sóley.
Staðan í hálfleik 2-0 fyrir gestunum en Blikar náðu að bíta frá sér þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Hin unga og efnilega Sunna Rún Sigurðardóttir skoraði fyrir Blika, sem var hennar fyrsta opinbera meistaraflokksmark síðan hún gekk til liðs við félagið frá ÍA síðasta sumar.
Lengra komust þó Blika ekki og 2-1 sigur Vals staðreynd. Valur mætir næst ÍBV þann 14. febrúar á meðan Breiðablik heimsækir Tindastól 22. febrúar.
Athugasemdir




