Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 05. mars 2023 23:16
Brynjar Ingi Erluson
Hvernig er það að tapa 7-0? - „Ekki liðið svona illa síðan ég fékk að víta að Carragher væri byrjaður að vinna hjá Sky"
Gary Neville var fremur þungur yfir þessum úrslitum eins og sjá má á þessari mynd
Gary Neville var fremur þungur yfir þessum úrslitum eins og sjá má á þessari mynd
Mynd: Twitter
Gary Neville og Jamie Carragher fóru yfir 7-0 sigur Liverpool á Manchester United á Anfield í dag en Neville svaraði meðal annars spurningum frá notendum Twitter og var þá spurður hvernig tilfinningin væri að tapa 7-0.

Þessi færsla vísaði beint í 7-0 tap Valencia gegn Barcelona er Neville stýrði Valencia-liðinu. Ævintýr Neville entist á Spáni entist í fjóra mánuði áður en hann var rekinn.

Barcelona gekk frá lærisveinum Neville en hann fékk að upplifa það í annað sinn hvernig það er að tapa með svona miklum mun. Neville svaraði því spurningunni.

„Á þessum tímapunkti tímabilsins þá voru þeir ótrúlegir. Suarez, Messi og Neymar frammi. Neymar var að rústa þeim og við vorum manni undir í stöðunni 2-0. Það var ekkert sem ég gat gert og var búinn með skiptingarnar. Ég reyndi að setja þá í 4-4-1, til að þétta mannskapinn, en raunveruleikinn er sá að Barcelona var ótrúlegt á þessum tíma,“ sagði Neville.

„Hvernig líður mér eftir þetta? Mér hefur ekki liðið svona illa síðan mér var sagt að Carragher væri að byrja hjá Sky,“ sagði Neville.


Athugasemdir
banner
banner