Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 05. apríl 2021 19:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörkin: Lingard í stóru hlutverki - Frábært fyrra mark
Mynd: Getty Images
West Ham leiðir 2-0 gegn Wolves eftir hálftíma leik. Jesse Lingard skoraði fyrra mark West Ham eftir frábæra skyndisókn og átti svo stóran þátt í öðru marki þegar hann kom sér úr erfiðri stöðu úti við endalínu við hornfánann.

Vladimir Coufal og Pablo Fornals voru með flott tilþrif, laglegan þríhyrning, þar sem Fornals flikkaði honum skemmtilega aftur á Coufal. Coufal kom svo boltanum á Lingard fyrir aftan miðju. Lingard tók á sprett og skeiðaði inn á teiginn og skoraði með laglegu skoti. Michail Antonio á stóran þátt í markinu með frábærlega tímasettu þverhlaupi.

Í seinna markinu kom Lingard boltanum á Arthur Masuaku sem lagði hann svo áfram á Fornals sem skoraði með góðu skoti.

Smelltu hér til að sjá fyrra markið.

Smelltu hér til að sjá annað markið.


Athugasemdir
banner
banner
banner