Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 05. apríl 2021 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan að framlengja um eitt ár - Fertugur í október
Mynd: Getty Images
Fréttamaðurinn virti Fabrizio Romano segir samnningsviðræður Zlatan Ibrahimovic og AC Milan vera á góðum vegi.

Allt bendir til þess að sænski framherjinn, sem er nýlega byrjaður að spila aftur með landsliðinu, muni leika áfram hjá Milan á næstu leiktíð.

Það er einkar merkilegt í ljósi þess að Zlatan á fertugsafmæli í október, en hann hefur verið ótrúlega öflugur á leiktíðinni þrátt fyrir mikil meiðslavandræði.

Zlatan er búinn að skora 15 mörk í 16 deildarleikjum og verður áhugavert að fylgjast með honum á næstu leiktíð.

Hann er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Milan sem var á toppi ítölsku deildarinnar um tíma en er núna í öðru sæti, átta stigum eftir toppliði Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner