Fotbolti.net
05.04.26 - 10:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Góður vinur Salah lætur áhugaverð ummæli falla

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Mohamed Salah mun kveðja Liverpool eftir tímabilið og róa á önnur mið. Salah hefur sýnt töfra sína með Liverpool síðustu níu árin, en þetta verður hans síðasta tímabil í Liverpool-treyjunni.

Liverpool samþykkti að leyfa Salah að fara frá félaginu í sumar, aðeins ári eftir að hann framlengdi samning sinn.
Salah fer frá Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Salah fer frá Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Mohamed Aboutrika, góður vinur Salah, hefur tjáð sig um ákvörðunina og eru ummæli hans svo sannarlega áhugaverð.

„Ein af ástæðunum fyrir því að Salah yfirgefur Liverpool er Arne Slot. Við höfum séð ákveðin vandamál að undanförnu. Þú, Slot, ýttir honum í burtu," sagði Aboutrika.

„Salah vill einfaldlega vinna í ró og næði og njóta næsta kafla á ferlinum. Hann þarf enga staðfestingu frá Slot eða neinum öðrum."

Samband Salah og Slot virtist brotið þegar framherjinn sakaði stjórann um að „kasta sér undir rútuna“ eftir að hafa verið skilinn eftir utan byrjunarliðsins í þrjá leiki í röð í byrjun desember á síðasta ári. Salah hefur spilað nokkuð eftir það, en sambandið er nú líklega ekki gott miðað við þessi orð hjá vini Salah.

Það er þó ákveðin kaldhæðni í því að Salah sé sagður yfirgefa Liverpool vegna Slot, þar sem staða Hollendingsins á Anfield virðist sjálf vera í óvissu og sérstaklega eftir tap gegn Manchester City í enska bikarnum í gær.

Salah hefur átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili en líklegast þykir að hann fari til Sádi-Arabíu í sumar.

Arne Slot, stjóri Liverpool.

Arne Slot, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.