Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 20:26
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu ótrúlegt klúður Simeone - Átti að dæma víti?
Simeone vildi fá vítaspyrnu.
Simeone vildi fá vítaspyrnu.
Mynd: EPA
Arsenal er þessa stundina að keppa við Atlético Madrid í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Arsenal er einu marki yfir eftir að Bukayo Saka skoraði í fyrri hálfleik en fyrri leiknum í Madríd lauk með 1-1 jafntefli eftir að bæði lið skoruðu af vítapunktinum.

Atlético hefur fengið góð tækifæri til að jafna á Emirates leikvanginum í kvöld en ekki tekist að koma boltanum í netið.

Giuliano Simeone, sonur þjálfarans Diego, fékk besta færið þegar hann komst inn á milli í lélegan skalla William Saliba aftur til baka á markvörð. Simeone náði að koma sér framhjá David Raya markverði en Gabriel Magalhaes náði að trufla hann nægilega mikið til að taka hann úr jafnvægi og endaði Simeone á að skjóta boltanum framhjá.

Gabriel komst hvergi nálægt því að ná til boltans og snerti Simeone lítillega en Daniel Siebert dómari neitaði að dæma vítaspyrnu. Hann dæmdi þess í stað hornspyrnu, þó að Gabriel hafi ekki náð til boltans.

Simeone og liðsfélagar hans voru ekki sáttir með ákvörðun dómarans.


Atletico Madrid penalty shout vs Arsenal (VAR checked and cleared)
by
u/977x in
soccer

Slapp
banner
banner
banner