Fotbolti.net
05.06.13 - 21:40
Arnar Daði Arnarsson

Hlynur Svan: Mættum aldrei til leiks

Auglýsing
Hlynur Svan: Mættum aldrei til leiks
Canon

Mynd: Slava Titov

Hertz
Hlynur Svan þjálfari Breiðabliks og hans leikmenn þurftu að þola fyrsta ósigur sumarsins í kvöld. Breiðablik tapaði 1-3 gegn FH á Kaplakrikavelli eftir að hafa komist 1-0 yfir snemma leiks. Það voru fá jákvæð lýsingarorð sem Hlynur gat sagt eftir leikinn, skiljanlega.
,,Við mættum aldrei til leiks. FH voru miklu miklu miklu betri í þessum leik og unnu mjög svo sannfærandi sigur.\"

,,Við áttum í erfiðleikum með að láta boltann ganga á milli manna. FH virtust alltaf eiga möguleika að fara í gegnum vörnina okkar, það slitnaði svakalega á milli fremstu og öftustu línu okkar. Stelpurnar voru rosalega ólíkar sjálfum sér í dag, sagði Hlynur sem segir að markverðir sínir í leiknum hafi haldið liðinu inní leiknum,

,,Hún hélt okkur á floti í þessum leik. FH sköpuðu sér fullt af færum. Við vorum seinar og þær voru undan í alla bolta hvort sem það var í loftinu eða í návígjum. Við getum ekkert sagt eftir svona frammistöðu,\" sagði Hlynur Svan sem hrósaði einnig varamarkverðinum, Ástu Guðlaugsdóttur sem er á sautjánda aldursári og kom innáí byrjun seinni hálfleiks eftir að Birna Kristjánsdóttir fór af velli eftir tvær frábærar vörslur á innan við 5 sekúndum.

Viðtalið við Hlyn Svan er hægt að sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.