Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 05. júní 2020 14:46
Elvar Geir Magnússon
Sancho sektaður fyrir að fara grímulaus í klippingu
Þýska deildin hefur ákveðið að sekta Jadon Sancho, leikmann Borussia Dortmund, eftir að hann var myndaður í klippingu heima hjá sér án þess að vera með grímu.

Sancho, sem er 20 ára, fékk hárgreiðslumann heim til sín og braut tilmæli heilbrigðisyfirvalda í Þýskalandi.

Liðsfélagi hans, Manuel Akanji, var líka sektaður fyrir sama brot.

Sancho hefur farið á kostum með Dortmund í þýsku deildinni en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester United.
Athugasemdir
banner