PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ætlar að kaupa dýrasta leikmann í sögu Real Madrid
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Forsetakosningar Real Madrid fara fram um helgina og virðist Florentino Pérez núverandi forseti í góðri stöðu.

Ef Pérez nær endurkjöri verður José Mourinho ráðinn sem nýr þjálfari aðalliðsins fyrir 15 milljónir evra, Denzel Dumfries kemur úr röðum Inter fyrir 20 milljónir og þá kemur Ibrahima Konaté á frjálsri sölu frá Liverpool.

Í gærkvöldi bætti Pérez um betur og lofaði að leggja fram mettilboð í sögu félagsins.

„Á þriðjudaginn mun ég leggja fram 150 milljón evru tilboð í ungan leikmann úr toppliði sem leikur í Meistaradeildinni. Þetta er frábær leikmaður en þetta er ekki Michael Olise, Erling Haaland, Jérémy Doku eða Harry Kane," sagði Pérez.

„Þetta er ekki leikmaður úr ensku úrvalsdeildinni en hann er í svipuðum gæðaflokki og Kaká og Cristiano Ronaldo þegar við keyptum þá á sínum tíma. Við erum tilbúnir að borga 150 milljónir evra fyrir þennan leikmann.

„Þetta er ekki varnarmaður en þetta gæti verið miðjumaður eða sóknarmaður. Markmiðið mitt er að vekja spennu meðal stuðningsmanna."


Jude Bellingham er dýrasti leikmaður í sögu Real Madrid og kostaði um 130 milljónir evra. Á eftir honum koma Eden Hazard og Gareth Bale.

   04.06.2026 06:34
Riquelme ætlar að krækja í Haaland og Rodri

Slapp
banner
banner
banner