PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bayern íhugar að kaupa ungstirni Liverpool
Mynd: EPA
David Ornstein, blaðamaður hjá TheAthletic, er einn best upplýsti félagaskiptablaðamaður heims. Hann greinir frá því í dag að Bayern München sé að skoða möguleikann á því að kaupa Rio Ngumoha af Liverpool.

Ngumoha er 17 ára vinstri kantmaður sem fékk nokkuð mörg tækifæri á tímabilinu með aðalliði Liverpool. Hann verður 18 ára í lok ágúst og kom alls við sögu í 29 leikjum með Liverpool í vetur og skoraði tvö mörk.

Samkvæmt Transfermarkt á enski kantmaðurinn tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool. Alls hefur hann spilað 36 leiki fyrir yngri landslið Englands.

Ornstein segir að á þessum tímapunkti hafi engin samskipti átt sér stað milli Bayern og Liverpool vegna ungstirnisins, en Bayern keypti Luis Díaz af Liverpool síðasta sumar. Blaðamaðurinn segir þá að Liverpool vilji alls ekki selja Ngumoha og planið í sumar sé frekar að styrkja sóknarlínuna en að veikja hana.


Slapp
banner
banner