Það fóru þrír leikir fram í Lengjudeild karla í kvöld þar sem topplið Aftureldingar tapaði á útivelli gegn HK.
Atli Þór Gunnarsson kom heimamönnum yfir snemma leiks en Aron Elí Sævarsson jafnaði tíu mínútum síðar.
Staðan var jöfn eftir skemmtilegan fyrri hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora. Afturelding fékk bestu færin en Ólafur Örn Ásgeirsson varði meistaralega í tvígang.
Dominik Radic endurheimti forystu heimamanna með marki beint úr hornspyrnu í jöfnum síðari hálfleik og fékk liðsfélagi hans Haukur Leifur Eiríksson að líta beint rautt spjald skömmu síðar þegar hann var alltof seinn í tæklingu.
Mosfellingum tókst ekki að jafna metin gegn tíu heimamönnum í Kópavogi svo lokatölur urðu 2-1. Afturelding er með 16 stig eftir 8 umferðir, einu stigi fyrir ofan HK.
HK 2 - 1 Afturelding
1-0 Atli Þór Gunnarsson '11 1-0
1-1 Aron Elí Sævarsson '21
2-1 Dominik Radic '75 2-1
Rautt spjald: Haukur Leifur Eiríksson '79
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Afturelding
Í Njarðvík lentu heimamenn undir snemma leiks gegn ÍR þegar Bergvin Fannar Helgason skoraði fyrir gestina úr Breiðholti, en gleði gestanna var ekki langlíf.
Arnleifur Hjörleifsson og Hrafn Guðmundsson snéru stöðunni við fyrir leikhlé og bættu heimamenn þremur mörkum við í síðari hálfleiknum svo lokatölur urðu 5-1.
Björn Aron Björnsson, Bragi Karl Bjarkason og Oumar Diouck skoruðu mörkin. Njarðvík er með 11 stig eftir 8 umferðir, fjórum stigum fyrir ofan ÍR.
Njarðvík 5 - 1 ÍR
0-1 Bergvin Fannar Helgason ('8)
1-1 Arnleifur Hjörleifsson ('33)
2-1 Hrafn Guðmundsson ('44)
3-1 Björn Aron Björnsson ('51)
4-1 Bragi Karl Bjarkason ('80)
5-1 Oumar Diouck ('90)
Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 1 ÍR
Að lokum tapaði Ægir gegn Leikni R. er liðin mættust í Þorlákshöfn. Gestirnir úr Breiðholti skoruðu þrjú mörk á sjö mínútna kafla til að tryggja sér sigurinn.
Staðan var markalaus í afar tíðindalitlum fótboltaleik allt þar til Leiknismenn náðu að setja mörkin þrjú í síðari hálfleik.
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði fyrsta markið áður en Daði Bærings Halldórsson og Anton Fannar Kjartansson innsigluðu þriggja marka sigur.
Leiknir er með 12 stig eftir sigurinn, fimm stigum fyrir ofan Ægi.
Ægir 0 - 3 Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson '71
0-2 Daði Bærings Halldórsson '77
0-3 Anton Fannar Kjartansson '78
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 3 Leiknir R.


