Linda Líf Boama er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku og hefur farið vel af stað í Svíþjóð með Kristianstad.
Eins og flestir vita hefur Kristianstad verið mikil Íslendinganýlenda síðustu árin. Elísabet Gunnarsdóttir var aðalþjálfari þarna lengi og ávallt hafa verið margir íslenskir leikmenn á mála hjá félaginu.
Eins og flestir vita hefur Kristianstad verið mikil Íslendinganýlenda síðustu árin. Elísabet Gunnarsdóttir var aðalþjálfari þarna lengi og ávallt hafa verið margir íslenskir leikmenn á mála hjá félaginu.
Í dag eru Alexandra Jóhannsdóttir, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir einnig á mála hjá félaginu. Því er töluð einhver íslenska innan klefans en Linda vill helst tala sem minnsta íslensku í klefanum. Hún ætlar sér nefnilega að læra sænskuna af krafti.
„Þetta er bara heimili fjarri heimilinu. Það er mjög auðvelt að aðlagast," sagði Linda og hélt áfram:
„Maður er að reyna að tala sænskuna. Þetta er jákvætt en líka neikvætt að því leytinu til að mig langar að læra sænskuna strax. Ég er í sænskutímum og tek þessu alvarlega."
„En jú auðvitað talar maður íslensku við stelpurnar og við verðum að passa okkur því Nik (Chamberlain, þjálfari Kristianstad) kann allt á íslensku og talar mikið sjálfur," sagði Linda og hló.
En hvernig gengur með sænskuna?
„Ágætlega. Stelpurnar eru duglegar að tala við mig á sænsku og þá svara ég á sænsku. Hún er bjöguð hjá mér en ég svara. Ég er búinn að vera þarna í nokkra mánuði, gefðu mér smá tíma."

