05.07.05 - 07:14
Magnús Már Einarsson
Xisco til Betis (Staðfest)




Sóknarmaðurinn Xisco hefur gert sex ára samning við Real Betis. Xisco sem er 24 ára kemur frítt til liðsins þar sem samningur hans við Valencia var runninn út.
Xisco sem spilar ýmist á vinstri kanti eða í fremstu víglínu skoraði tvö mörk í 22 leikjum með Valencia á síðustu leiktíð. Hann stóðst læknisskoðun hjá Betis í gær og verður kynntur hjá liðinu í dag en áður höfðu spænsku bikarmeistarnir krækt í Alberto Rivera frá Levante.
Xisco sem á leiki að baki með yngri landsliðum Spánverja var í láni hjá Recreativo Huelva í tvö tímabil og því kannast hann við sig í kringum Sevilla borg þar sem Betis er staðsett.
Xisco sem á leiki að baki með yngri landsliðum Spánverja var í láni hjá Recreativo Huelva í tvö tímabil og því kannast hann við sig í kringum Sevilla borg þar sem Betis er staðsett.
