05.07.05 - 07:32
Magnús Már Einarsson
Tore Andre Flo til Valerenga (Staðfest)




Norski sóknarmaðurinn Tore Andre Flo hefur gert samning við Valerenga í heimalandinu. Flo gerði samning við liðið þar til í lok tímabilsins 2006 en hann var kynntur fyrir leik Valerenga og Odd Grenland í gær sem fyrrnefnda liðið sigraði 3-0.
Flo sem er 32 ára hefur leikið með liðum eins og Chelsea, Rangers og Sunderland en hann var síðast hjá Siena á Ítalíu. Hann var orðaður við ensk og spænsk lið en ákvað að fara til Noregs eftir að hafa rætt við fjölskyldu sína.
