Fotbolti.net
05.07.05 - 13:39
Magnús Már Einarsson

Watson til WBA (Staðfest)

Watson að skora.

Watson að skora.

Canon
Steve Watson hefur gert þriggja ára samning við WBA og er hann þar með þriðji leikmaðurinn sem kemur til liðsins á innan við viku. Watson sem er 31 árs hafnaði eins árs framlengingu á samningi sínum við Everton og ákvað að koma til WBA.
Watson sem er fyrrum leikmaður Newcastle og Aston Villa lék 28 leiki með Everton á síðustu leiktíð en hann spilar hægri bakvörð, miðvörð eða á miðjunni.

Bryan Robson stjóri WBA sagði: ,,Steve hefur góða reynslu og mun vera dýrmæt viðbót í hópinn okkar. Ég reyndi að fá hann þegar að ég var stjóri Middlesbrough en missti af honum. Ég er ánægður með að fá hann að þessu sinni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.