05.07.05 - 13:45
Magnús Már Einarsson
Vieri til AC Milan (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Christian Vieri hefur nokkuð óvænt gengið til liðs við AC Milan en hann yfirgaf nágranna þess í Inter Milan á föstudaginn. Vieri sem verður 32 ára í næstu viku hefur gert samning við AC til ársins 2007 en þessu greindi liðið frá á heimasíðu sinni fyrir stundu.
Vieri var orðaður við ensk lið eins og Tottenham og Newcastle sem og lið á Spáni en hann ákvað að ganga til liðs við AC Milan sem endaði í öðru sæti í Serie A sem og í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.
Vieri gekk í raðir Inter frá Lazio árið 1999 en kaupverð var 50 milljónir dollara sem var heimsmet en hann hafði áður leikið með Atletico Madrid og Juventus. AC Milan verður níunda félag leikmannsins sem hóf ferilinn með Torino.