Fotbolti.net
05.07.05 - 15:48
Magnús Már Einarsson

Luis Fabiano til Sevilla (Staðfest)

Luis Fabiano til Sevilla (Staðfest)
Canon
Brasilíski framherjinn Luis Fabiano hefur gert fimm ára samning við spænska liðið Sevilla. Fabiano kemur til liðsins frá Porto en hann fór til portúgalska liðið í ágúst í fyrra.
Fabiano lék áður með Sao Paulo í Brasilíu og skoraði 19 mörk í 23 leikjum árið 2002 og síðan 29 mörk í 34 leikjum árið 2003. Hann var svo markahæstur í Libertadores keppninni árið 2004 þegar að hann hjálpaði Sao Paulo að komast í undanúrslit.

Í mars á þessu ári var móður Fabiano rænt og hún var í haldi mannræningjanna í tvo mánuði áður en henni var sleppt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.