Fotbolti.net
05.07.05 - 15:58
Magnús Már Einarsson

West til Plymouth (Staðfest)

Taribo West hress að vanda.

Taribo West hress að vanda.

Canon
Enska 1.deildarliðið Plymouth Argyle hefur krækt í nígeríska varnarmanninn Taribo West. Hinn 31 árs gamli West hefur gert eins árs samning við Plymouth en hann lék síðast með Al-Arabi í Katar.
Þessi hárprúði varnarmaður var orðaður við Benfica og nokkur fleiri félög vildu einnig fá hann en Nígeríumaðurinn ákvað að fara til Plymouth.

West sem á 40 landsleiki að baki fyrir Nígeríu byrjaði feril sinn í Evrópu með franska liðinu Auxerre en síðan þá hefur hann leikið með Inter Milan, AC Milan, Derby County, Kaiserslautern og Partizan Belgrade.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.