Fotbolti.net
05.07.21 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Lundstram til Rangers (Staðfest)

Lundstram til Rangers (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skotlandsmeistarar Rangers í Glasgow hafa tryggt sér miðjumanninn John Lundstram sem kemur á frjálsri sölu frá Sheffield United.

„John er leikmaður sem kemur til með að styrkja leikmannahópinn okkar," segir Steven Gerrard, stjóri Rangers.

„Hann er með góða reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og er með góða tæknilega getu og líkamlegan styrk. Ég hef hrifist af hugarfari hans í viðræðum síðustu vikur, hann er sigurvegari," segir Gerrard.

Lundstram er 27 ára gamall og hefur veirð hjá Sheffield United síðan 2017.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.