Gætu frestað upphafsflautinu í Mexíkó

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það er eitthvað um þrumur og eldingar í Mexíkó fyrir upphafsflautið á stórleik heimamanna gegn Englandi á heimsmeistaramótinu.

TENGT EFNI
Mættu með flugelda fyrir utan hótel enska landsliðsins
Þjóðirnar eigast við í 16-liða úrslitum HM og mun sigurvegarinn mæta Noregi í 8-liða úrslitum.
Komu leikmanna á leikvanginn var frestað vegna þrumuveðursins og er óljóst hvort þurfi að fresta upphafsflautinu.
Leikurinn á að byrja á miðnætti á íslenskum tíma en gæti verið frestað ef þrumunum fer ekki að linna.
Byrjunarliðin verða þó kynnt innan skamms. Leikurinn fer fram á heimavelli Mexíkó, Azteca leikvanginum sem er í rúmlega 2,2km hæð yfir sjávarmáli.
Stuðningsmenn Mexíkó voru með gríðarleg læti fyrir utan liðshótel Englands alla síðustu nótt.

#england team bus is jeered and sprayed with foam as it arrives at Azteca Stadium (despite FIFA saying teams told to delay arrivals whilst lightning risk remains). pic.twitter.com/7twjDTbtET
— Rob Dorsett (@RobDorsettSky) July 5, 2026

Mynd: EPA