Fotbolti.net
05.07.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Rudi Garcia um FIFA: Þetta er aprílgabb í júlí

Rudi Garcia um FIFA: Þetta er aprílgabb í júlí
Canon

Mynd: EPA

Rudi Garcia landsliðsþjálfari Belgíu er ekki sáttur með ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun fyrir leik Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Bandaríkjunum.
Balogun er markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á mótinu og mun leiða línuna gegn Belgíu þrátt fyrir að hafa fengið beint rautt spjald í síðasta leik, eftir athugun í VAR-herberginu.

Fótboltasérfræðingar gagnrýndu ákvörðunina og voru Bandaríkjamenn æfir. Hvíta húsið er sagt hafa hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, til að ræða málið og skömmu síðar var banninu aflétt.

Trump lét afturkalla leikbannið
TENGT EFNI

Trump lét afturkalla leikbannið



„Ég vissi ekki að á HM og hjá FIFA er 5. júlí orðinn að 1. apríl. Þetta er bara aprílgabb," sagði Garcia þegar hann var spurður út í málið. „Við erum ekki að verja landsliðið okkar eða fótboltasambandið, við erum að verja heilindi fótboltans sem íþrótt.

„Ég held að þetta sé í fyrsta sinn í sögu HM sem leikmaður fer ekki í leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald. Þetta hefur aldrei gerst áður."


Belgar með harðorða yfirlýsingu gegn FIFA
TENGT EFNI

Belgar með harðorða yfirlýsingu gegn FIFA

Rudi Garcia um FIFA: Þetta er aprílgabb í júlí
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.